Sanngjörn verð
Með einfaldri yfirbyggingu náum við að bjóða verð og þjónustu sem er betri en hingað til hefur þekkst.
Fyrsta viðtal er yfirleitt gjaldfrjálst:
• Fulltrúi frá okkur heimsækir viðskiptavin á umsaminn stað. Veitt er viðtal sem er að öllu jöfnu 1/2 klst.
Ákveði viðskiptavinur að fara með málið á næsta stig er rukkað 22.000kr fyrir hverja klst. Inn í því er skrifleg samantekt á málavöxtum, lagarökum og fordæmum. Yfirleitt þarf ekki nema 1-2 klst til að ljúka þessu skrefi.
Eftir það er rukkað fast verð fyrir kröfugerðir, innheimtubréf, stefnur og önnur skjöl sem þarf að útbúa í samráði við viðskiptavin.
Virðisaukaskattur er 24,0 % og er til viðbótar allra gjalda samkvæmt gjaldskránni, komi það ekki fram.