Starfsemin

Starfsfólk Lögréttu ehf hafa það markmið að tryggja viðskiptavinum sínum trausta og áreiðanlega lögfærðiráðgjöf. Innan okkar vébanda eru sérfræðingar á helstu sviðum lögfræðinnar. Við höfum langa reynslu af ágreiningsmálum og álitaefnum sem reynt getur á í viðskiptum og samskiptum manna á milli. Lögrétta er því vel í stakk búin til þess að sinna af kostgæfni öllum þeim fjölbreyttu lagalegu viðfangsefnum sem sinna þarf í nútímaþjóðfélagi. Tilgangur félagsins er að veita ráðgjöf á sviði viðskipta- og lögfræði, aðra en málflutning fyrir dómstólum.

Ekki hika við að panta viðtal:
adstod@logrettaehf.is

Persónuverndarstefna félagsins: https://www.logrettaehf.is/personuverndarstefna/