Sáttamiðlun

Hvað er sáttamiðlun?
Sáttamiðlun er öflugt tæki fyrir stjórnendur fyrirtækja sem og einstaklinga. Sáttamiðlun er aðferð til lausnar ágreiningi, sem aðilar taka sjálfviljugir þátt í með hjálp óháðs og hlutlauss sáttamiðlara.

Hugmyndafræði sáttamiðlunar byggir á því að deiluaðilar eru sérfræðingarnir í sinni deilu og eru því best til fallnir að leysa vandann með hjálp hlutlauss sáttamiðlara.

Kostir sáttamiðlunar
• Spara pening og tíma
Sáttamiðlunarferlið er fljótvirkt og getur sparað umtalsverðan tíma í samanburði við mál sem þurfa að bíða úrlausnar dómstóla.

• Bætt samskipti
Hvort sem um er að ræða viðskiptasamband eða vinnusamband býður sáttamiðlun upp á möguleikann á að leysa ágreining í sameiningu þannig að báðir geti staðið uppi sem sigurvegarar

• Sambandið varðveitt
Sáttamiðlari getur veitt aðilum ráðgjöf í því hvernig bæta megi samskiptin í framtíðinni til þess að koma í veg fyrir að samskonar ágreiningur endurtaki sig.

• Sveigjanlegt ferli
Sáttamiðlun getur veitt aðilum svigrúm til þess að sníða lausn málsins að sameiginlegum þörfum sínum og hafa þannig möguleika á því að semja um niðurstöðu sem ekki hefði verið möguleg (eða ólíkleg) fyrir dómstólum.

• Trúnaður
Sáttamiðlun fer fram í trúnaði milli þeirra sem taka þátt í ferlinu og getur því verið ákjósanleg leið ef ágreiningsefnið er viðkvæmt eða þess eðlis að niðurstaða dómsmáls myndi ekki fullnægja væntingum aðila.

• Sambandið varðveitt
Hvort sem um er að ræða viðskiptasamband eða vinnusamband býður sáttamiðlun upp á möguleikann á að leysa ágreining í sameiningu þannig að báðir geti staðið uppi sem sigurvegarar.

Sáttamiðlun fyrir viðskiptalífið
Kostir sáttamiðlunar gera það að verkum að aðferðafræðin hentar oft mjög vel til þess að grípa inn í mál sem rísa í viðskiptalífinu, hvort sem það er innan vinnustaðar, milli fyrirtækja eða samstarfsaðila, eða aðrar deilur á vinnumarkaði.

Hér geturðu pantað viðtal við sérfræðing í sáttamiðlun:

Security Code:
security code
Please enter the security code:

Senda