Persónuvernd

Við bjóðum upp á heildarlausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir þegar kemur að hlítingu við nýju persónuverndarlögin. Við erum með sérhæft starfsfólk sem hefur mikla þekkingu á persónurétti og upplýsingaöryggi. Við höfum í dag lokið innleiðingu fyrir fjölda fyrirtækja og bjóðum þjónustu persónuverndarfulltrúa án mánaðargjalds. Hafðu samband ef þig vantar upplýsingar um ákvæði persónuverndarreglugerðarinnar, þjónustu persónuverndarfulltrúa eða aðstoð við afmörkuð verkefni, svo sem við gerð vinnsluskrár, persónuverndarstefnu, öryggisstefnu, mats á áhrifum á persónuvernd eða vinnslusamninga.

Ef þitt fyrirtæki notar fyrirtækjasíðu Facebook þá eru hér mikilvægar upplýsingar þegar kemur að persónuvernd: https://advisera.com/eugdpracademy/blog/2019/04/15/how-to-make-a-facebook-business-page-gdpr-compliant/

Allt frá upphafi internetsins hafa verið til upplýsingalög sem hafa eins og gefur að skilja tekið miklum breytingum. Lögvernd persónulegra réttinda snýst í raun um grundvallarréttindi einstaklinga. Flest þessara réttinda eru talin í lögfræðinni sem grundvallarréttindi eða mannréttindi. Í 71. gr. stjórnarskrárinnar segir  í 1. mgr. að „allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu“ en ákvæðið er samhljóða 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Allir sem vinna með persónuupplýsingar þurfa að uppfylla skilyrði nýju persónuverndarlaganna nr. 90/2018. Ákveðnar stofnanir og fyrirtæki eru þó skyldug til að ganga lengra en aðrir. Meðal þeirra eru aðilar sem vinna með mikið magn viðkvæmra persónuupplýsinga eins og t.d. upplýsinga um heilsufar.

Læknar, sjúkraþjálfar og aðrir sem tilheyra stétt heilbrigðisstarfsmanna og starfa utan stofnana þurfa t.d. að aðgæta sérstaklega meðferð persónuupplýsinga þeirra sjúklinga sem til þeirra leita. Lykilatriði er að tryggja öryggi heilbrigðisupplýsinga, t.d. með því að nota tvíþætta auðkenningu (2FA). Mat á áhrifum á persónuvernd, MÁP, gæti þurft að framkvæma til að meta og lágmarka áhættu fyrir persónuvernd einstaklinga við framkvæmd nýrra verkefna. Sjúklingar eiga að vera upplýstir um réttindi sín og sérstaklega skal aðgætt að miðlun til þriðja aðila sé eins takmörkuð og hægt er en þó næg til að sinna sjúklingnum án þess að það bitni á þjónustu við hann eins og kemur fram í lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997.

Nánast öllum sem vinna með persónuupplýsingar er síðan skylt að halda skrá yfir vinnslustarfsemi eða svokallaða vinnsluskrá. Upplýsingar um innihald hennar er að finna á vef Persónuverndar

Nánar má kynna sér skyldur sjalfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna hér:
https://www.gdprregister.eu/gdpr/healthcare-sector-gdpr/

Hér geturðu pantað viðtal við sérfræðing í persónuvernd og upplýsingaöryggi:

Security Code:
security code
Please enter the security code:

Senda